Æi ég veit ekki. Ég veit ekki neitt. Hef bara ekki græna glóru.
Þjáist af svo miklum valkvíða þessa dagana að hausinn á mér er að
springa. Græn eða rauð vínber? Í hvaða sófa á ég að sitja? Þáttur á
Skjá einum eða bíómynd á rúv? Video eða bíó? Ræktin kl. 10 eða
12?
Litlar ákvarðanir og gjörsamlega ómerkilegari en allt annað en ég
bara hef ekki glóru hvað ég vil. Reyndar tengist þetta aðallega
svona framtíðinni. Áðan fór ég að hugsa hvað það væri notarlegt að
kaupa íbúð með Baldri svo við gætum haft notarlegt í kringum okkur.
Ekki þrjár tegundir af sófum, auðir hvítir veggir og grænar
eldhúsinnréttingar.
En svo fór ég að hugsa að ég er of ung fyrir svoleiðis. Ég ætti að
vera að ferðast um heiminn og njóta lífsins.
Svo fer ég að pæla í námi. Ég var að horfa á Law and order og þá
langaði mig sjúklega til að vera rannsóknarlögregla eða lögmaður.
En svo horfði ég á House og langaði allt í einu að verða læknir eða
sjúkraþjálfari. Sex and the city og mig langar til að vera
drusla..

Hvað í anskotanum er eiginlega að mér?? Og svo til að toppa þetta
þá virðast ALLIR vera að spyrja mig um framtíðarplön. En ég hef
engin fokking framtíðarplön!
Látið mig í friði. Ég er uppvaskari, einhverntíma verð ég þjónn en
meira veit ég ekki. Ég veit ekki einu sinni hvar ég verð í
sumar.
En hvað á maður að gera. Láta hlutina bara gerast eða fríka yfir
þeim?
Mig langar aldrei til að verða fullorðin.