Jamm...hvað ætti maður að segja um þessi próf. Eitt fall í kröfurétti takk fyrir takk! Ákaflega svekkjandi fall þar sem vantaði 0,5 upp á að ná. En ég er svosem ekki að væla mikið yfir því. Það er endurtektarpróf í byrjun janúar og ég hygg á að nýta jólafríið vel í að læra þetta efni betur. Þetta er bara alls ekki létt fag og þeir sem eru að standa sig best eru þeir sem eru duglegastir að læra. Það væri synd að segja að segja að ég hafi verið dugleg í vetur
. Ég fæ að bæta fyrir það í jólafríinu
. Annars slefaði ég í bókstaflegri merkingu í stjórnskipunarrétti. Hefði ég fengið 0,1 minna hefði ég fallið. Mikið djöfull er ég sátt með það enda var þetta fáránlega erfitt próf. Ég giska á að hafa náð bókhaldinu þó einkunnin sé ekki birt ennþá. Ég ætti það a.m.k. skilið þar sem ég vakti alla nóttina fyrir þetta próf yfir kennitölum og reglum reikningsskilaráðs.
Eina sem er eftir er munnlega aðferðafræðiprófið á miðvikudaginn 12. des. Ég get ekki beðið eftir að klára það. Hef séð jólafríið mitt í hyllingum síðan um seinustu jól. Jah, ég hef ekki beint fengið frí síðan þá. Búin að vinna stanslaust og fór beint í HR frá Bjarkalundi.
Annars hef ég verið að safna dágóðum slatta af áramótaheitum í sarpinn. Þ.m.t. betri nýtingu á líkamsræktarkortinu í Baðhúsinu, betri tíma og árangurstjórnun í náminu, betri stjórn á fjármálum (jafnvel reglubundinn sparnaður?) og kannski ætla ég að fá mér vinnu. Gallup? Hreingerningar? Bar? Ég fæ samt ennþá hroll við tilhugsunina um þjónustustörf og þrif.
Annars stefni ég á að níða af mér þessa fullkomnunaráráttu hugsun sem tekur bólfestu í mér þegar síst skyldi. Oftast í próftíð þegar ég hef verið latur nemandi alla önnina. Alveg sérstaklega undarlegur hugsunarháttur þar sem ég framkvæmi lítið í því að reyna að vera fullkomin heldur er ég stöðugt að bera mig saman við þá bestu og svekkja mig á því að vera ekki best. Það er sérstaklega bjánalegt og tilgangslaust að sýna fullkomnunaráráttu ekki í verki heldur einungis í hugsunarhætti.
Jakk, ætti ég að birta þetta? ahh.. jújú. Ég er búin að læsa og loka að mér þessa próftíð og víst best að koma fréttum af mér af hérna.
Hafið það gott, Kv. Hulda Ösp